Þórir Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs Rauða krossins bendir á það í aðsendri grein í Fréttablaðinu í gær að aðstoð Íslendinga við flóttafólk sem hingað komi hafi engin áhrif á hjálparstarf hér heima.
Hann segir reynslu starfsfólks hjá Rauða krossinum vera þá að þeir sem séu reiðubúnir að hjálpa bágstöddum í útlöndum séu yfirleitt þeir sömu og hjálpa bágstöddum á Íslandi, hjálp við flóttafólk sé veitt án þess að það komi niður á annarri aðstoð.
Hann lýsir því í grein sinni hversu fjölþætt aðstoð Rauða krossins sé við bágstatt fólk á Íslandi, manneskjur sem glími ýmist við fátækt eða sjúkdóma; starfsemi Rauða krossins felist einmitt í því að hjálpa öllum sem þurfi á aðstoð að halda, eitt verkefni dragi ekki úr þróttinum við að sinna öðrum aðkallandi verkefnum.
\"Það fólk sem nú skráir sig til sjálfboðaliðastarfa finnur sig knúið til að hjálpa. Það sér mynd af konu úti á Miðjarðarhafi sem reynir að halda höfði barns fyrir ofan hafflötinn, með dýpið og dauðann fyrir neðan. Það sér mynd af líki barns sem skolar upp á strönd,\" skrifar Þórir og hnykkir á eftirfarandi: \"Við höldum áfram að sinna þeim sem þurfa aðstoð hér heima. Við getum líka tekið við fólki að flýja hræðilega borgarastyrjöld. Við erum rík þjóð. Og við getum múltitaskað.\"