Við erum umtöluð í útlöndum

Um 750 greinar og umfjallanir voru birtar í útlöndum um Ísland árið 2015 sem Íslandsstofa telur að hafi náð til 1,3 milljarða erlendra íbúa. Þetta kemur fram í upplýsingum frá Íslandsstofu.

Hundruð blaðamanna komu til landsins í fyrra og ekkert lát er á athyglinni samanber hneykslismál tengt Panamaleka og heimsókn Kardashian-systranna hingað til lands.

Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu hefur sagt í viðtali við Rúv að Kardashian-heimsóknin sé gríðarleg landkynning.

Í Morgunblaðinu í dag kemur fram að umfjallanir fjölmiðla um Ísland hafi mun meiri áhrif en auglýsingar.

Líkt og bandarískur ferðamaður orðaði það í samtali við Hringbraut á dögunum: \"You are being discovered,\" eða: Þið hafið verið uppgötvuð.

Svo um munar. Því stökkbreyting hefur orðið á komum ferðamanna frá Bandaríkjunum og fleiri ríkjum.

Peningar og ferðamenn flæða inn í landið á sama tíma og lítið er gert til þess að styrkja innviðina í þágu þess að verja landið.