Við erum kanarífuglinn í kolanámunni!

Hinsegin fólk er í raun eins og kanarífuglinn í kolanámunni sagði Hilmar Hildarson Magnúsarson, formaður Samtakanna 78 í fréttaskýringarþættinum heimsljósi í gærkvöld sem fjallaði um stöðu hinsegin fólks í heiminum.


Tilefni umræðunnar var nýafstaðin þjóðaratkvæðagreiðsla á Írlandi þar sem kaðólska kirkjan var slegin utan undir af þjóð sinni sem samþykkti hjónabönd hinsegin fólks með miklum meirihluta, kirkjunnar mönnum til sárinda og svekkelsis. Hilmar sagði í þættinum viðhorf heimsbyggðarinnar til fólks með aðra kynvitund en gengur og gerist jafna taka mið af aðstæðum og afkomu. Um leið og fari að þrengja að lýðræðislegum réttindum fólks eins og raunin hefur til að mynda verið í Rússlandi versni ástandið hjá hinsegin fólki og veist er að því með ofsóknum og refsingu.   


Hilmar sagði ástandið versna til muna í efnahagslegri lægð eins og nú ríki víða í Evrópu.  Undir það tók Hrafnhildur Gunnarsdóttir kvikmyndagerðarmaður sem gegndi formennsku fyrir Samtökin 78 á árunum 2005-2007.  Hún benti á að frjálslyndi og umburðarlyndi hafi einkennt árin 1920-1940, en hinsegin fólk hafi svo verið ofsótt í heimstyrjöldinni síðari.


Hilmar greindi einnig frá því að Ísland hefði fallið niður um nokkur sæti í Evrópuúttektum varðandi réttindi hinsegins fólks, en ástandið hefði þó ekki versnað hér heldur batnað í öðrum ríkjum.  Þá sé gjá að verða milli austurs og vesturs í Evrópu varðandi mannréttindi og jöfnuð, auk þess sem ofsóknir á hendur þessum hópi hafi aukist til muna í mörgum löndum Afríku, Asíu og í Miðausturlöndum. 


Hægt er að sjá Heimsljós í heild sinni á hringbraut.is svo og klippur úr þættinum.