Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, er í viðtali í Þjóðbraut í kvöld. Þar er hann spurður um hvert það leiðir þegar gengi krónunnar hefur hækkað um 6,5 prósent á aðeins þremur mánuðum.
Staða okkar er mjög góð og þess sjást víða skýr merki. Þórarinn segir hátt gengi krónunnar hafa neikvæð áhrif á útflutningsgreinarnar en jákvæðu áhrifin séu meiri og betri.
Þórarinn nefnir að sparnaður hefur aukist og skuldir lækkað.
Hann var spurður hvort, í ljósi þessa, hvort stýrivextir hafi verið ofháir. Hann sagði að hafi þeir vita þá, það sem nú er vitað, er trúlegt að vextirnir hefðu verið lægri.
Viðtalið við Þórarin er á dagskrá Þjóðbrautar um klukkan 21:45 í kvöld.