Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, ritstjóri Kvennablaðsins, segir ekkert athugavert við að ráða blaðamann sem er til rannsóknar hjá Ríkissaksóknara og kann að sæta ákæru senn.
„Hlín Einarsdóttir er ákaflega hæfur blaðamaður og ritstýrði öflugasta kvennamiðli landsins um árabil. Því var það ekki stór ákvörðun eins og þú orðar það í spurningu þinni að ráða hana til starfa heldur réðum við hana vegna ótvíræðrar hæfni hennar og reynslu. Kvennablaðið/Sykur eru fjölmiðlar ekki dómstólar.“
Þannig svarar Steinunn Ólína fyrirspurn Hringbrautar, þar sem spurt er hvort það flokkist undir siðferðislegt álitamál að Steinunn Ólína hafi ráðið Hlín til starfa sem blaðamann.
Spurt er vegna stöðu Hlínar en óvíst er enn hvort Ríkissakóknari ákærir Hlín í máli sem vakti mikla athygli í sumar. Hlín og systir hennar Malín Brand voru í maí handteknar og grunaðar um að hafa sent fjárkúgunarbréf í pósti til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra. Þar var Sigmundur Davíð krafinn um verulega peningafjárhæð og vakti mikla athygli.
Þá hefur annað mál verið ril rannsóknar þar sem ungur maður lagði fram kæru á hendur systranna vegna fjárkúgunar sem nam 700.000. Maðurinn var sakaður um að hafa nauðgað Hlín eftir að lögreglu barst fjárkúgunarkæran.
Á svæfinu Sykur hjá Kvennablaðinu hefur nú birst grein eftir Hlín þar sem hún fjallar um nýjan átröskunarsjúkdóm.