Rannveig Rist forstjóri álvers Rio Tinto í Straumsvík segir fyrirtækið ekki vera að hóta stéttarfélögum því að álverinu verði lokað, komi til verkfalls. Móðurfélagið hafi enga slíka yfirlýsingu gefið að sögn Rannveigar, heldur sé það bara eðlilegt mat á aðstæðum.
Rætt var við forstjórann í Kastljósi í gærkvöld í tilefni af því að stéttarfélög starfsmanna álversins aflýstu í fyrrakvöld fyrirhugðu verkfalli sem hefjast átti á miðnætti í gær. Ástæðuna segja talsmenn þeirra hafa verið þá að þeir hafi talið að gera hefði átt þá ábyrga fyrir hugsanlegri lokun álversins, ef til verkfalls kæmi.
Forsvarsmenn Rio Tinto höfðu lýst því yfir ítrekað yfir á síðustu vikum að svo gæti farið að álverinu yrði lokað vegna verkfallsins, en það hefur verið rekið með tapi upp á hvern dag svo misserum skiptir.
Móðurfyrirtækið hefur lokað fjórum álverum sínum víða um heim á undanliðnum árum.