Við erum ekki á leið í esb

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra var afdráttarlaus á Iðnþingi í dag, aðspurður um Evrópumálin; Ísland væri ekki á leið inni í Evrópusambandið á meðan við völd væri ríkisstjórn tveggja flokka sem báðir væru andvígir aðild. Ljóst er að þessi orð Bjarna hafa ekki fallið í góðan jarðveg meðal allra iðnrekenda því meirihluti félagsmanna innan SI vill halda umsóknarferlinu opnu og kanna hvað samningur við ESB feli í sér. Hagsmunir iðnrekenda eru enda miklir. Formaður samtakanna, Guðrún Hafsteinsdóttir kom raunar inn á þá í ræðu sinni á þinginu í dag, minnti á ótta margra Íslendinga á sínum tíma við inngönguna í EFTA sem margir hefðu álitið dauðadóm íslensks iðnaðar. Sá ótti hefði verið ástæðulaus. "Íslandi farnast best í nánu samstarfi við önnur lönd," sagði formaðurinn á þinginu.