Guð blessi Ísland er kraftmikið – eiginlega alveg tryllt og galið verk á stóra sviði Borgarleikhússins hefur fengið gríðarlega góða dóma. Verkið er byggt að stórum hluta á Rannsóknarskýrslu Alþingis en í verkinu er hvorki afstaða tekin til manna eða málefna né einn sannleikur dregin fram - eiginlega eru allir í tómri óvissu á meðan verið er að reyna að koma til skila efni rannsóknarskýrslunnar og leikararnir stoppa sýninguna á tímpunkti og hætta að leika hlutverkin sín. Verkið er eiginlega blanda af venjulegu leikhúsi, farsa, rokkóperu og loftfimleikum þar sem bæði eru notaðar gamlar fréttaútsendingar, lottóvél, Glamrock senur, lottóúrdráttur og líkbíl er renn inn og út af sviðinu.
Höfundar eru Mikael Torfason og Þorleifur Örn Arnarsson.
Brynhildur Guðjónsdóttir leikkona og Hjörtur Jóhann Jónsson leika tvö meginhlutverkanna í sýningunni. Við sjáum brot úr henni á Þjóðbraut í kvöld með Lindu Blöndal í kvöld. Brynhildur leikur Davíð Oddsson og sjálfa sig svo líka og Hjörtur leikur að stærstum hluta Björgólf Thor Björgólfsson, fyrrverandi eiganda Landsbankans. Kvenkyns leikarar leika Ólaf Ragnar Grímsson og Hannes Hólmstein Gissurarson sem fátt sé nefnt af því sem kemur á óvart fyrir áhorfanda.
\"Við eigum öll okkar sannleika\", segir Brynhildur um afstöðu hvers og eins til Hrunsins.