Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingkona VG, talaði um hinn mikla mun sem er á orkukostnaði á landinu. Hún sagði að á vef Byggðastofnunar sé sem sýni það.
„Byggðastofnun fékk Orkustofnun til þess að gera úttekt á þeim samanburði. Þar koma fram sláandi upplýsingar sem varða marga á landsbyggðinni sem búa við háan húshitunarkostnað. Það kemur fram að það er meiri munur á húshitunarkostnaði á landinu en á raforkukostnaðinum. Það munar t.d. 287% á húshitunarkostnaði heimila á Seltjarnarnesi og í dreifbýli á Vestfjörðum. Það er gífurlega hár munur. Rafmagnskostnaður í dreifbýli er 52% hærri en lægsta verð í þéttbýli og munurinn hefur aukist frá því í fyrra þótt við hefðum talið okkur hér vera að reyna að ná því eitthvað niður með auknum fjármunum til að að jafna dreifingu á raforku,“ sagði Lilja Rafney.
Hún sagði að miðað við 140 fermetra hús sé húshitunarkostnaður á ári 291 þús. kr. á orkusvæði Orkubús Vestfjarða en 123 þús. kr. á Seltjarnarnesi. Munurinn er 135%. „Það hlýtur að ýta við okkur þingmönnum að gera betur.“
Lila Rafney sagði að sem betur fer búi yfir 90% þjóðarinnar við húshitun með heitu vatni. „Við þurfum að horfa til þeirra sem ekki hafa þá auðlind við höndina. Heildarkostnaður vegna húshitunar á heimili á Hólmavík er 265 þús. kr. á ári. Það er hæsti kostnaður á landinu.“
Að lokum sagðui hún: „Ég lít þannig á að jarðvarminn sé sameign okkar, þjóðarinnar, alveg eins og fiskveiðiauðlindin í sjónum sem allir landsmenn vilja fá arðinn af. Er ekki rétt að við horfum á þetta með sama hætti og jöfnum orkuverð í landinu og göngum alla leið í þeim efnum? Við höfum tækifæri til þess í fjárlögum.“
-sme