Við eigum að vera stolt af örunum okkar

Við eigum að vera stolt af örunum okkar, segir Linda Sæberg, 37 ára íslensk kona sem greindist með brjóstakrabbamein fyrir rösku ári - og sigraðist á vanda sínum eftir erfiða og flókna aðgerð og eftirmeðferð, jafnt líkamlega og tilfinningalega.

Hún er ein tíu einstaklinga sem koma fram á ljósmyndasýningunni Skapa fötin manninn? sem er hugarfóstur ljósmyndarns Kári Sverrissonar og hangir nú uppi utan Hörpu, en þar er ekki verið að fela afleiðingar krabbameins heldur þvert á móti verið að afhjúpa örin, skallann, fótmissinn og brjóstnámið.

Linda segir sögu sína í fréttaþættinum 21 í kvöld, meðal annars hvernig hún tókst á við umræðuna um dauðann með tæplega þrettán ára gamalli dóttur sinni, en það var ekki einfalt mál. Sjálf fór hún í fleygskurð til að vinna bug á meini sínu - og örið sem eftir situr er að hennar sögn ekkert til að fela, heldur minni það hana á verkefnið sem hún fór í gegnum og ekki síður þá staðreynd að hún bar sigur úr býtum. Örið sé hennar sigurtákn - og það er hennar reynsla að jafn mikilvægt sé að sýna það og segja frá því; umræðan og upplýsingin sé afskaplega mikilvægur þáttur í bataferlinu - og undir það tekur sessunaautur Lindu í þætti kvöldsins, Hulda Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts en félagið er tuttugu ára um þessar mundir og efnir af þvi tilefni til fjölmargra viðburða, svo sem nútvitundarteits í Hörpu 20. september þar sem slagorð Krafts, lífið er núna, verður í forgrunni.

Fréttaþátturinn 21 byrjar klukkan 21:00 í kvöld og þar mun Linda Blöndal líka taka fyrir átak stallsystranna Á allra vörum sem hverfist um fíknivanda ungmenna að þessu sinni sem minnir á að við eigum aðeins eitt líf.