Við breytumst í prinsipplausa aula!

\"Ef við afklæðumst sjálfsvirðingunni fyrir framan alheim til þess að spara fé hættum við að vera kúl og breytumst í blauta, nakta, kalda eyju í Norður-Atlantshafi þar sem búa prinsipplausir aular sem enginn vill heimsækja.\"

Svona hljóðar niðurlag greinar forstjórans Kára Stefánssonar í Fréttablaðinu í gær, en þar fjallar hann um hringlandahátt stjórnvalda í Rússamálinu stóra sem hefur hvorutveggja skekið samtök útgerðarmanna og heilu ríkisstjórnina svo lykilmenn hennar eru við það  að kikna í hnjánum. Kára er ekki skemmt. Hann skilur ekki hvernig menn geta efast um að vera í hópi þjóða sem reyna að sporna gegn heimsyfirráðastefnu Rússa: \"Einhverra hluta vegna hélt ég að sú ákvörðun væri svo góð,\" skrifar Kári \"að hún væri hafin yfir alla gagnrýni þótt fyrir henni hafi staðið utanríkisráðherra sem er slíkur endemis klaufi að flest sem hann gerir, hvort sem það er skynsamlegt eða ekki, virðist stórslys við fyrstu sýn.\"

Hann skilur ekki skjálftann vegna minni hagsmuna sem varða fisk, þegar sjálfsvirðing heillar þjóðar er í húfi. Og sér er nú hver reisnin yfir ráðamönmnum, hugsar Kári og horfir á leikritið: \"Forsætisráðherra bað forsetann að fara bónleið til sendiherra Rússa í þeirri von að honum tækist að sannfæra hann um að við værum slíkir helvítis aumingjar að það væri ljótt að kalla okkur til ábyrgðar fyrir eigin gerðir sem miðuðust þó við að kalla þá til ábyrgðar fyrir þeirra.\"

Kári sér fyrir sér að allur heimurinn muni fá að vita þegar Íslendingar hætti að andmæla ofbeldi Rússa \"vegna þess að við tímdum því ekki.\" Og þá munum við sem þjóð ganga af skömm einni álút og hokin í hnjánum í anda þess sem Steinn Steinarr orti um í eina tíð.

Svona hringlandaháttur sem vegur að sjálfvirðingu þóðarinnar muni að sögn Kára valda henni mun meira efnahagslegu tjóni en sem nemur Rússagullinu. Jafnvel ferðaþjónustan öll sé í húfi, því hver vilji heimsækja svona prinsipplausa og sjálfhverfa þjóð þegar fram líði stundir.