Athafnamaðurinn Thomas Möller sem skrifar reglulega pistla á Hringbraut birtir 10 atriða lista á fésbók sinni nú í upphafi árs um uppsafnaðan vanda staðnaðs íslensks landbúnaðar.
Listinn er svar hans við nýlegri Moggagrein Guðna Ágústssonar, fyrrverandi landbúnaðarráðherra um nauðsyn varðstöðu um íslenska landbúnaðarkerfið. Thomas minnir á þessar staðreyndir um landbúnaðarstuðning á Íslandi:
1. Við erum með þriðja mesta landbúnaðarstuðning í heimi af 196 löndum – um 38 milljónir renna til landbúnaðar á Íslandi á dag…365 daga á ári.
2. Um 65% af launum bænda kemur frá ríkinu.
3. Ef við hækkum mjólkurlítrann um 70 krónur þá sparast um 7 milljarðar (mjólkin myndi þá kosta sama og sódavatn).
4. Ef lambakjötskílóið hækkaði um 1000 kall þá sparast um 6 milljarðar í styrki.
5. Ullin er niðurgreidd um u.þ.b. milljarð….hækka lopapeysurnar um 2000 kall og málið er leyst.
6. Ef verndartollar væru felldir niður þá spara heimilin 13 milljarða sem er um 100 þús krónur á hvert heimili.
7. Landbúnarðarstuðningur á Íslandi síðustu 60 ár hefur kostar um 1235 milljarða á núvirði, plús mínus 100 milljarðar.
8. Búið er að grafa 33,000 km af framræsluskurðum fyrir bændur, aðeins um 3450 km eru nýttir í jarðrækt.
9. Skurðirnir gefa af sér um 72% af gróðurhúsaáhrifum Íslands, 15 sinnum meira en allur bílaflotinn.
10. Nýja Sjáland hætti styrkjum og innan 5 ára var landbúnaður þar orðinn sá öflugasti í heiminum.
\"Er þetta þess virði,\" spyr Thomas Möller á fésbók sinni - og botnar pistil sinn svona: \"Maður bara spyr sig.\"