Viðskiptaráð Íslands leggur til til að ríkisstofnunum hér á landi verði fækkað úr 188 í 70. Þetta kemur fram í nýrri skoðun ráðsins sem nefnist Sníðum stakk eftir vexti, 30 tillögur að fækkun ríkisstofnana.
Þar segir að Ísland sé örríki í alþjóðlegum samanburði og eigi að reka opinbera kerfið í ljósi þess. Kostnaður af því að halda úti stofnanakerfi sem jafnist á við mun fjölmennari þjóðir sé gríðarlegur. Því leggi Viðskiptaráð Íslands til að fækka ríkisstofnunum úr 188 í 70.
\"Það sem við erum að benda á er að í fámennari ríkjum er kostnaðurinn meiri við flókið stofnanakerfi,“ segir Björn Brynjúlfur Björnsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs í samtali við visir.is í morgun - og bendur ennfremur á að mikilvægast sé að draga úr kostnaði fremur en endilega að kjarnastarfsemi þessara stofnana verði minnkuð: \"Við erum að leggja til að draga úr kostnaði meðal annars vegna stjórnunarkostnaðar og stofnþjónustu. Sá kostnaður dregur úr getu þessara stofnana til að sinna hlutverkum sínum með fullnægjandi hætti,“ segir Björn Brynjúlfur.
Viðskiptaráð telur að engin efnisleg rök standi í vegi fyrir einföldun stofnanakerfisins, reynsla af sameiningum hafi verið jákvæð. Eftir sameiningu lögregluembætta í upphafi árs 2007 hafi þjónustan batnað; hlutfall upplýstra mála jókst um 29 prósent, eignaspjöllum fækkaði um 40 prósent og ánægja með störf lögreglunnar jókst um fimm prósent.