\"Þingmenn Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs hafa talað linnulítið gegn því ranglæti sem ríkisstjórnin beitir tekjuminni hópa landsmanna með skattabreytingum sem gagnast þeim efnameiri og bitna á láglaunafólki.\"
Þetta kemur fram í tilkynningu VG vegna fjárlagavinnu stjórnvalda, en þar segja þingmenn tekist á um grundvallaratriði í samfélagsmálum: \"Þingmenn VG hafa haldið uppi vörnum fyrir Landspítalann þar sem verulegar fjárhæðir skortir til að sjúkrahúsið geti haldið uppi eðlilegri þjónustu við sjúklinga. Þingmenn Vinstri - grænna hafa einnig lagt fram tillögur ásamt öðrum stjórnarandstöðuflokkum til að tryggja að öryrkjar og aldraðir fái kjarabætur í samræmi við aðra hópa í samfélaginu. Þá hafa þingmenn Vinstri - hreyfingarinnar græns framboðs líka andmælt kröftuglega árvissri atlögu gegn Ríkisútvarpinu, þar sem ætlunin er að lækka útvarpsgjaldið þvert á loforð og yfirlýsingar menntamálaráðherra,\" segir í tilkynningu þingflokksins.
Þingflokkurinn segir að með fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2016 haldi ríkisstjórnin áfram að auka ójöfnuð: \"Almenningur verður af tekjum, tekjustofnar ríkisins eikjast og fjármunir ganga til stórefnafólks og stórfyrirtækja í stað innviða samfélagsins. Eftir situr fjársvelt heilbrigðis – og velferðarkerfi, fjárvana menntakerfi og ekki síst; aldraðir og öryrkjar, sjúklingar og ungt fólk.\"
Atkvæðagreiðslan um fjárlagafrumvarpið endurspegli afstöðu til skiptingar gæðanna og afstöðuna til réttmætra krafna öryrkja og aldraðra: \"Ef stjórnarþingmenn kjósa að fella málefnalegar og fjármagnaðar tillögur stjórnarandstöðu um að bæta kjör lífeyrisþega þá er holur hljómur í málflutningi forsætisráðherra sem stærði sig af jöfnuði fjárlagafrumvarpsins við upphaf atkvæðagreiðslunnar. Hættan er sú að fjárlögin 2016 festi enn í sessi ójafnaðarstefnu núverandi ríkisstjórnar sem mun valda samfélaginu öllu skaða,\" segja þingmenn VG sem hyggjast halda áfram baráttu sinni gegn ójöfnuði og fyrir bættum kjörum eldri borgara, öryrkja og sjúklinga.