Vg endar að lokum í faðmi íhaldsins

Ritstjórarnir rýndu í líklegasta stjórnarsamstarfið í samnefndum fréttaskýringaþætti á Hringbraut í gærkvöld, en tíðindi gærdagsins eru vitaskuld þau að upp úr samræðum Bjartrar framtíðar, Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar slitnaði fyrr í gær.

Eggert Skúlason, fyrrverandi ritstjóri DV og annar tveggja gesta Sigmundar Ernis í þætti gærkvöldsins, sem nú má sjá hér á vef stöðvarinnar, kveðst sannfærður um að til samstarfs Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna komi á endanum, en viðræður þessara flokka geti tekið langan tíma og ný stjórn ekki tekið við fyrr en á nýju ári, sennilega eftir hótanir Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands um utanþingsstjórn. Og Eggert bætir við og segir samstarf Bjarna Benediktssonar og \"krúttsprengjunnar\" Katrínar Jakobsdóttur sé og verði í samræmi við skilaboð kjósenda um breiðara samstarf í pólitíkinni hér á land, sannkölluð sáttastjórn verði þar á ferðinni.

Steingerður Steinarsdóttir, ritstjóri Vikunnar er sessunautur þeirra Eggerts og Sigmundar Ernis í þættinum og er ekki alveg jafn sannfærð um samstjórn þessara tveggja tiltölulega íhaldssömu flokka með fulltingi annaðtveggja, Framsóknar eða Viðreisnar, jafnvel Bjartrar framtíðar, en að því sögðu fynnist henni ekki heldur líklegt að vinstri blokkin nái saman með aðstoð Viðreisnar, þótt það verði örugglega fyrsti kostur Katrínar, hvort heldur sem minnihluta- eða meirihlutastjórn. Málið sé snúið og margar atrennur að stjórnarsamstarfi séu fyrirsjáanlegar.

Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:30.