Það er allt annar bragur á yfirvofandi ríkisstjórnarmyndun en flestum þeim fyrri sem almenningur á Íslandi hefur kynnst, en þá hafa vanalega tveir karlar lokað að sér í reykfylltu bakherbergi og skilað sér svo út í gættina fáum dögum seinna með valdhrokann á vörum.
Gott ef Katrínu Jakobsdóttur, formanni VG takist ekki að milda yfirbragð gömlu herraflokkanna sem lengst af hafa verið við völd á lýðveldistímanum á Íslandi, en alltént er ljóst að nú eru stjórnmálaforingjar væntanlegrar valdstjórnar að vanda sig langtum meira en áður hefur þekkst í aðdraganda ríkisstjórnarsamstarfs með breiðara og opnara samtali við hagsmunasamtök.
Þetta er mat þeirra Fanneyjar Birnu Jónsdóttur og Róberts Marshalls, margreynd fjölmiðlafólks sem eru gestir Sigmundar Ernis í Ritstjóraþætti kvöldsins, en þar er pólitíkin tekin fyrir í fyrri hlutanum og kvennabyltingin í þeim síðari, sem þau segja enga bólu heldur raunverulegt hreyfiafl sem breyta muni menningu og mannlegum samskiptum til frambúðar, þökk sé samtakamætti kvenna sem slegið hefur þöggunarvopnið úr höndum karlpunganna með svo eftirminnilegum hætti að þeir standa eftir sem kjánalegir minnipokamenn.
Ritstjórarnir byrja klukkan 21:00 í kvöld.