Vg: innanlandsflug til keflavíkur

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn á Selfossi 23. – 25. október 2015, ályktar að innanlandsflug verði flutt til Keflavíkur þegar Reykjavíkurflugvöllur leggst af.

Svo segir í drögum að samþykkt sem Vinstri grænir á Suðurnesjum leggja til en fjölmargar aðrar tillögur að samþykktum liggja nú fyrir og hafa verið opinberaðar. Lesa má um það hér.

Í drögunum segir einnig að innanlandsflugstöð yrði þá byggð Reykjavíkurmegin við flugvöllinn. Samhliða verði unnið að hraðari og skilvirkari samgöngum á svæðinu til að stytta ferðatímann.