Vg fengju 20 þingsæti

Sjálfstæðisflokkurinn tapar þriðjungi þingsæta. Könnunin var gerð símleiðis dagana 2. - 6. október og var fjöldi svarenda 1.083. Um 13% sögðust óákveðnir eða ætla að skila auðu eða ekki kjósa.

Fylgi flokkanna skiptirst þannig að VG fá 28,2% og 20 þingsæti.

Sjálfstæðisflokkurinn fær 20,7% og 14 þingsæti.

Samfylkingin fær 10,8% og 7 þingsæti.

Flokkur fólksins og Píratar og Miðflokkurinn er nánast jafn stórir með um 9% og 6 þingsæti hver flokkur.

Framsóknarflokkurinn fær 5,5% og 4 þingsæti.

Fylgi VG hefur dalað en þó lítið. Samfylkingin bætir talsvert við sig fylgi.  Önnur framboð fá mun minna fylgi.

Björt framtíð fær 2,7%. Viðreisn fær 3,1%.

Samfylkingin er samkvæmt þessu þriðja stærsta framboðið.

[email protected]