Edward Hákon Hujibens, varaformaður Vinstri grænna telur eðlilegt að Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra segir af sér í ljósi þeirra stöðu sem hún er búin að koma sér í Landsréttarmálinu.
Þetta kom fram á flokksráðsfundi VG í dag, en Edward tók þó fram að það væri hvorki af hans hálfu né flokksins skýlaus krafa að Sigríður axlaði sín skinn, en persónulega teldi hann það ríkisstjórnarsamstarfinu fyrir bestu að hún stigi til hliðar.
Hann tók skýrt fram að mál þetta væri ekki þess eðlis að ríkisstjórnin riðaði til falls.