Á stjórnarfundi VG síðastliðinn föstudag var samþykkt að ráðast í ritun sögu Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs fyrir 20 ára afmælið á næsta ári. Ritnefnd kemur saman á næstunni og velur sagnfræðíng til að starfa að sögurituninni. Stefnt er að því að sagan komi út á bók og boðin verði áskrift að henni.
Í tilkynnigu frá flokknum segir aðVinstrihreyfingin-grænt framboð sé nítján ára í dag, en hún hafi formlega verið stofnuð 6. febrúar 1999 til að sameina vinstrisinna og náttúruverndarfólk fyrir þingkosningar 8. maí 1999. VG hafi unnið stórsigur í sínum fyrstu kosningum, fengið 9.1 prósent atkvæða.
\"Nú 19 árum síðar leiðir Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, ríkisstjórn Íslands og er VG með þrjá ráðherra, forseta Alþingis og ellefu manna þingflokk á Alþingi. Flokkurinn fékk 16.9 prósent atkvæða í Alþingiskosningum, og félagar í VG eru hátt í sexþúsund talsins. VG býður fram í mörgum sveitarstjórnum og er undirbúningur fyrir kosningar vel á veg kominn í stærstu sveitarfélögunum,\" segir í tilskrifi flokksins af þedssu tilefni.