Vextir óbreyttir

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans þ.e. vextir á sjö daga bundnum innlánum verða því áfram 5%. Samkvæmt þjóðhagsreikningi Hagstofu Íslands var hagvöxtur 7,2% árið 2016.Það er einu prósenti meiri vöxtur en spáð var í febrúar sl. Verðbólgan mældist 1,9% í febrúar sl. Verðbólgan er því áþekk því sem hún hefur verið sl. sex mánuði. 

 

Að því er varðar verðbólgu togast sem fyrr á tveir kraftar. Hagvöxtur er meiri en spáð var. Á hinn bóginn er gengi krónunnar hærra. Gengishækkun og lítil alþjóðleg verðbólga vega eins og áður á móti verðbólguþrýstingi af innlendum rótum. Hefur bilið á milli verðþróunar innlendra þátta eins og húsnæðiskostnaðar og erlendra þátta aukist. Aðhaldssöm peningastefna skapar verðbólguvæntingum kjölfestu. Haldið er aftur af útlánavexti og vexti eftirspurnar.

 

Of snemmt er segja til um efnahagleg áhrif síðustu skrefa við losun fjármagnshafta. Hugsanlegt er að betra jafnvægi skapist á milli inn- og útstreymis á gjaldeyrismarkaði . Skammatímahreyfingar kunna að aukast eins og sést hafa merki um síðustu daga. Mun Seðlabanki Íslands eftir sem áður draga úr skammtímagengsissveiflum þegar tilefni er til. Þá mun aðhaldsstig peningastefnunnar á komandi misserum ráðast af framvindu efnahagsmála og annarri hagstjórn.

 

Nánar www.sedlabanki.is