Þorsteinn Sæmundsson þingmaðuir Framsóknarflokksins segist ætla að halda áfram að gagnrýna vaxtahækkanir Seðlabanka Íslands þótt svo nafni hans Pálsson hafi í þarsíðasta pistli sínum á hringbraut.is kallað þá gagnrýni hans loddaralist. Vextir hér á landi séu úr takti við aðstæður.
Tilefni skrifa Þorsteins Pálssonar í síðustu viku voru þau að gagnrýni þingmannsins Þorsteins Sæmundssonar á Seðlabankann hitti stjórnarliða sjálfa fyrir; vaxtaákvörðun Seðlabankans væri afleiðing af stjórnarstefnu, m.a. í peningamálum.
Þingmaðurinn hefur nú brugðist við tilskrifi nafna síns Pálssonar og segir að fullyrðing hans um að gagnrýni sín á Seðlabankann jafngildi áfellisdómi á forsætisráðherann sé \"í besta falli barnalegur spuni,\" og hann bætir svo við: \"Hugsanlega hafa stjórnarþingmenn verið mýldir á tíma Þorsteins í stjórnmálum en hans tími er löngu liðinn.\"
Þingmaðurinn segist hafa farið í pólitík til að reyna að hafa áhrif til góðs á lífskjör almennings. Þar skipti vaxtastigið miklu máli. Hann muni því halda áfram að sýna Seðlabankanum aðhald þótt hann eigi að heita sjálfstæð og óháð stofnun sem taki ákvarðanir sínar án utanaðkomandi afskipta. Ólíkt kannski Þorsteini Pálssyni , sem sé stjórnarformaður MP-banka og hafi hag af háum vöxtum, vilji hann sem þingmaður berjast gegn háu vaxtastigi í þágu almennings.
Þorsteinn Sæmundsson segir svo: \"Óvíða í heiminum eru stýrivextir hærri en hér. Ég hef oftlega borið saman stýrivexti hér og í Bretlandi. Þar hefur verðbólguþróun ekki verið víðsfjarri því sem hér gerist að undanteknu hruntímabilinu. Í Bretlandi eru stýrivextir hálft prósent og hafa verið um langa hríð. Ég gagnrýndi Seðlabankann fyrir tveim árum og geri það enn, ítrekað, vegna þess að vaxtaákvarðanir Seðlabankans hafa ekki verið teknar í samræmi við þróun efnahagsmála á hverjum tíma heldur að því er virðist af fyrirframgefnum ástæðum. Bankinn hefur enda ítrekað hækkað stýrivexti eða sleppt því að lækka þá sama hvað á gengur. Engu virðist skipta hvort verðbólga er lág eða há, hvort hagvöxtur er minnkandi eða í vexti , hvort gengi krónu er sterkt eða veikt. Á þetta hafa ýmsir aðrir bent en sá sem hér stýrir penna, þ.á.m. hagfræðingarnir Friðrik Jónsson, Gylfi Arnbjörnsson og nú síðast Gunnar Þór Gíslason.\"
Svargrein Þorsteins má lesa hér í heild sinni:
Hagsmunagæsla á Kögunarhóli.
Þorsteinn Pálsson stjórnarformaður MP banka sendi mér kveðju á Hringbraut fyrir helgina og kann ég honum þakkir fyrir. Í greininni ber Þorsteinn mér á brýn loddararahátt vegna gagnrýni minnar á Seðlabanka Íslands og vaxtaákvarðanir hans. Ein af ástæðum þess að sá sem hér ritar hóf þátttöku í stjórnmálum á sínum tíma var að ég vildi reyna að hafa áhrif til góðs á lífskjör almennings. Eitt af því sem hefur mest áhrif á afkomu og lífskjör almennings er vaxtastigið í landinu. Óvíða í heiminum eru stýrivextir hærri en hér. Ég hef oftlega borið saman stýrivexti hér og í Bretlandi. Þar hefur verðbólguþróun ekki verið víðsfjari því sem hér gerist að undanteknu hruntímabilinu. Í Bretlandi eru stýrivextir hálft prósent og hafa verið um langa hríð. Ég gagnrýndi Seðlabankann fyrir tveim árum og geri það enn, ítrekað, vegna þess að vaxtaákvarðanir Seðlabankans hafa ekki verið teknar í samræmi við þróun efnahagsmála á hverjum tíma heldur að því er virðist af fyrirframgefnum ástæðum. Bankinn hefur enda ítrekað hækkað stýrivexti eða sleppt því að lækka þá sama hvað á gengur. Engu virðist skipta hvort verðbólga er lág eða há, hvort hagvöxtur er minnkandi eða í vexti , hvort gengi krónu er sterkt eða veikt. Á þetta hafa ýmsir aðrir bent en sá sem hér stýrir penna, þ.á.m. hagfræðingarnir Friðrik Jónsson, Gylfi Arnbjörnsson og nú síðast Gunnar Þór Gíslason. Rétt er að benda á að Seðlabankinn hefur ekki beitt bindiskyldu gagnvart viðskiptabönkum eins og hann hefur fulla heimild til sbr. m.a. 11. gr. laga nr. 36/2001. Bankann virðist skorta trú á þá aðferð. Auðvitað er nafna mínum í sjálfsvald sett að kalla gagnrýni mína loddaralist. Sjálfum finnst mér skylda mín að vekja athygli á brýnum hagsmunamálum almennings og mun halda því áfram jafn lengi og þörf er á. Fullyrðing stjórnarformanns MP banka að gagnrýni mín á Seðlabankann jafngildi áfellisdómi á forsætisráðherra er í besta falli barnalegur spuni. Hugsanlega hafa stjórnarþingmenn verið mýldir á tíma Þorsteins í stjórnmálum en hans tími er löngu liðinn.
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð og óháð stofnun sem tekur ákvarðanir án utanaðkomandi afskipta. Þessi staða bankans kallar á að ákvarðanir hans séu ræddar opinberlega og gagnrýndar. En auðvitað er Þorsteinn Pálsson á öndverðum meiði við mig þegar vaxtastig er til umræðu. Hann er stjórnarformaður eins af viðskiptabönkunum í landinu. Kögunarhóll Þorsteins er nú stjórnarformannsstóll MP banka. Ekki hafa menn á móti vaxtaokri í þeim geiranum. Það væri nú annað hvort að stjórnarformaður MP banka talaði gegn stýrivaxtahækkun. Enginn loddaraháttur þar á ferð einungis ísköld hagsmunagæsla.
Í grein nafna míns á Hringbraut er nokkur misskilningur uppi. Hvergi kom fram í máli mínu að Seðlabankinn eigi að hafa sanngirnisrök til hliðsjónar við stýrivaxtaákvarðanir. Ég geri einungis kröfu um að ákvarðanirnar séu teknar á faglegum forsendum. Ég tel skorta þar á. Þá er enn ótalið eitt hættuspil sem fylgir hávaxtastefnu Seðlabankans. Nú þegar stýrivextir hafa verið hækkaðir og boðað er að enn frekari hækkanir blasi við eykst hætta á að innstreymi fjármagns aukist að mun með áður þekktum afleiðingum. Allir virðast muna það gegndarlausa innstreymi fjármagns sem hér varð á árunum fyrir hrum og var í raun ein af ástæðum þess að illa fór nema kannski stjórnendur Seðlabankans. Einnig má nefna að allvel fer um innistæður kröfuhafa í núverandi vaxtaumhverfi þannig að ákvarðanir bankans eru að kosta almenning verulegt fé.
Þegar við nafnarnir vorum í Verzló fyrir rúmum fjörutíu árum skar Þorsteinn Pálsson sig úr í hópnum og fór um ganga í Blazerjakka og með flagaraklút. Hann þótti efnilegur þá. Í raun hefur fátt breyst síðan.
Nema að nú gæti Þorsteinn skipað sér í hóp þeirra sem á ensku eru kallaðir ,,Grand Old Men.“ Þorsteinn kýs aftur á móti að skipa sér í sveit þeirra sem nefndir eru geðstirðir gamlir karlar, e. ,,Grumpy Old Men.“ Það er miður því hann er enn efnilegur.