Seðlabankinn spáir því að verðbólga fari í fjögur prósent snemma á næsta ári og verði á bilinu fjögur til fjögur og hálft prósent næstu tvö árin en hjaðni eftir það. Verðbólga er enn undir markmiði Seðlabankans en verðbólguhorfur hafa versnað verulega vegna nýgerðra kjarasamninga.
Stýrivextir Seðlabanka Íslands eru nú 5,5 prósent. Þeir voru hækkaðir um 0,5 prósent í maí og aftur í byrjun þessarar viku. Vilhjálmur segir í samtali við RÚV að mikilvægt sé að almenningur átti sig á því hvaða afleiðingar það hafi fyrir heimili og fyrirtæki þegar stýrivextir eru hækkaðir með þeim hætti sem Seðlabankinn hefur gert. hann tekur dæmi af hjónum sem eru með 25 milljón króna óverðtryggt lán: \"Svona stýrivaxtahækkanir munu leiða til hærri vaxta og bara til að einfalda dæmið þá þýðir það einfaldlega það að ef að vextir hækka um eitt prósent á slíku láni þá er það aukning á greiðslubyrði sem nemur 250 þúsund krónum á ársgrundvelli eða rúmum 20 þúsund krónum á mánuði þannig að svona stýrivaxtahækkun hefur veruleg áhrif fyrir heimilin í landinu,“ segir Vilhjálmur í frétt RÚV um eftirköst vaxtahækkunar Seðlaabankans í gær, en forkólfar hans hafa jafbnvel gefið í skyn að vextir verði enn frekar hækkaðir þegar líða tekur á haustið.