Vextir eru of háir við gjörbreytt hagkerfi

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands (SÍ) birti vaxtaákvörðun sína í morgun. Þá fyrstu á árinu 2017. Ákveðið er að halda vöxtum bankans óbreyttum. Vextir SÍ á sjö daga bundnum innlánum verða því áfram 5%. Ferðaþjónusta og útflutningur og viðskiptakjör eru drifkraftar mikils hagvaxtar og gengishækkunar árið 2016.

Það er því fullkomlega eðlilegt að staldra við og velta því fyrir sér hvort að vextir séu einfaldlega of háir í gjörbreyttu hagkerfi á Íslandi með tilkomu ferðaþjónustu. Þjónustu sem dregur úr spennu í hagkerfinu. 

Verðbólga hefur haldist undir markmiði SÍ í samfleytt þrjú ár. Vaxtastig SÍ er samt á svipuðum slóðum og í febrúar árið 2014. Þá fór verðbólga fyrst undir markmið SÍ. Þess vegna er það mat oddvita atvinnulífsins að nú er mál að linni.

Forsendur vaxtalækkunann gætu ekki verið skýrari!

Verðbólguhorfur hafa batnað lítillega. Þrátt fyrir það er meiri spenna í þjóðabúskapnum. Horfurnar byggja á þeim forsendum að kjarasamningar á vinnumarkaði losni ekki á næstunni. Um það ríkir fullkomin óvissa. Órói á vinnumarkaði kallar á varkárni hjá SÍ við ákvörðun vaxta. Verðbólguþrýstingur á Íslandi er sem sagt töluverður. Og er hann meiri en gert var ráð fyrir í nóvember í fyrra. 

Nánar á www.sedlabanki.is

Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA) skrifar í dag: „Þrátt fyrir að flest allir mælikvarðar styðji við vaxtalækkun á Seðlabankinn óþekka samstarfsmenn í íslenskri hagstjórn. Það er ekki bara Seðlabankans að tryggja verðstöðugleika við lágt vaxtastig heldur bera aðilar vinnumarkaðar og stjórnvöld þar mikla ábyrgð. Að því sögðu er áleitin spurning hvort vaxtastigið sé einfaldlega of hátt þrátt fyrir að hagkerfið sé í uppsveiflu.“ 

Nánar á www.sa.is