Illviðrið sem geysað hefur á meginhluta landsins síðasta sólarhring breytir lítt um svip fram á helgina. Búist er við að vindur slái upp undur 25 metra á sekúndu á morgun og töluverðum éljagangi, einna síst þó um norðaustanvert landið. Enn er snjóflóðahætta á Vestfjörðum, einkum á sunnanverðum fjörðunum, svo sem Patreksfirði þar sem rýming í hluta þorpsins er enn í gildi. Á þesSum slóðum hefur dúrað í morgun, en illfært er hins vegar á flestum leiðum á svæðinu, enda skafrenningur ennþá víða á heiðum. Fólk sem er á ferðinni er enn sem fyrr hvatt til að hafa samband við 1777 eða meta færðina á vegagerdin.is.