Frá föstudegi og fram á sunnudag er útlit fyrir stífa suðvestanátt með éljum og fremur köldu veðri, en bjart norðaustantil á landinu. Hálka og snjóþekja getur myndast á vegum, einkum meðan sólar nýtur ekki við.
Þetta segir í varnaðarorðum veðurfræðings Veðurstofu Íslands í dag, en kuldapollurinn sem verið hefur yfir landinu ætlar að reynast þaulsetinn, núna þegar komið er fram í framlengingu vetrar.
Og orðsending Vegagerðarinnar er í þessum anda: Það er krapi eða snjóþekja á nokkrum leiðum í uppsveitum Suðurlands og á Vesturlandi eru hálkublettir á nokkrum fjallvegum, krapi á Holtavörðuheiði og hálka á Fróðárheiði.
Hálkublettir eru flestum fjallvegum á Vestfjörðum en snjóþekja á Kleifaheiði, Mikladal og Hálfdán. Þæfingsfærð er á Dynjandisheiði og snjóþekja á Hrafnseyrarheiði.
Það er að mestu greiðfært á Norður- og Austurlandi en þó eru hálkublettir á nokkrum fjallvegum. Það snjóar fyrir vestan Höfn og þar er snjóþekja vestur fyrir Gígjukvísl.