Eftir all nokkur hlýindi síðustu daga, einkum um norðan- og norðaustanvert landið þar sem hiti fór víða vel yfir 15 stig í gær, er útlit fyrir skammvinnt kuldakast þegar líðuna á vikuna. Veðurfræðingar greina ennþá él í kortunum og má búast við þeim á mörkum vetrar og sumars, en síðasti vetrardagur, altént samkbæmt almanakinu er á miðvikudag með viðeigandi sumardegi daginn eftir.
Það er þó ekki miklar líkur á mjög sumarlegum degi á fimmtudag. Enda þótt sunnlendingar megi búast við bjartviðri á þeim ágæta frídegi verður vindur nokkuð harður úr norði með frosti um norðanvert landið og éljagangi nokkuð víða.
Annan dag íslensks sumars verður áfram kalt. Þá er útlit fyrir ákveðna norðanátt með éljagangi, en þurru veðri sunnan- og suðvestanlands. Frost verður um allt land, en sums staðar frostlaust syðst að deginum.