Veturinn heldur innreið sína með nokkru áhlaupi um helgina eftir að hafa staðið svo að segja í gættinni í nokkrun tíma, en fyrirferð hans um helgina á Ísalandi verður harla mikil.
Það hvessir heldur með snjó- eða slydduéljum sunnan- og vestanlands í dag, en lægir víða og rofar til í kvöld. Svo gengur hann í norðanhvin á bilinu 13 til 18 metra á sekúndu og því fylgir slydda eða rigning við austurströndina í nótt. Norðan og norðvestan rembingur og snjókoma eða slydda verður svo norðaustanlands á morgun, annars 8 til 13 metrar og dálítil él, en bjartviðri syðra.
Veðurstofan gerir ráð fyrir kólnandi veðri á laugardag og hiti kringum frostmark á morgun, en á sunnudag og fram í miðja næstu viku er svo gert ráð fyrir stífri norðaustanátt með snjókomu eða éljagangi, en bjartviðri suðvestanlands.
Skeyti Vegagerðarinnar eru eftir þessi harla hvít, en víða er hálka eða hálkublettir á Suðvestur- og Suðurlandi. Hálka og éljagangur er á Holtavörðuheiði, snjóþekja á Bröttubrekku, hálkublettir eru í Norðurárdal og Fróðárheiði annars eru vegir greiðfærir á Vesturlandi. Nokkur hálka eða snjóþekja er á fjallvegum á Vestfjörðum. Hálkublettir nokkuð víða á láglendi. Hálka og hálkublettir eru á Norður- og Austurlandi. Snjóþekja á Borgarfjarðarvegi en greiðfært er með ströndinni Suðaustanlands.