Vetrarhiti og vatnsveður á landinu

Stormur er á austurhelmingi landsins og mikil rigning er á Suðausturlandi og Austfjörðum, að því er fram kemur í veðuryfirliti Veðurstofu Íslands, en mjög milt loft er yfir landinu og hefur hitinn náð um og yfir tíu stig á nokkrum mælistöðum.
 
Samkvæmt morgunyfirliti veðurfræðinganna er fárviðrisstrengur óþægilega nálægur Austfjörðum, en þar segir að veðrið muni róast og að síðdegis megi búast við sunnan 5 til 13 metrum með éljum en það styttir upp og rofar smám saman til á Norður-og Austurlandi.  Það fer kólnandi og hitinn verður heilt yfir í kringum frostmark.
 

Í nótt og framan af morgundeginum verða litlar breytingar á veðri en það fer síðan að draga til tíðinda annað kvöld. Fram kemur í yfirliti Veðurstofunnar að djúp lægð nálgast landið úr suðri og að nýjustu spár geri ráð fyrir að lægðarmiðjan fari hratt til norðurs yfir austurhluta landsins aðfaranótt miðvikudags.

Veðurstofan segir að austan við lægðarmiðjuna sé búist við vindstreng af styrk fárviðris. Vindurinn vestan lægðarmiðjunnar verður yfir landinu og hann er „einungis“ af styrk hvassviðris eða storms.