Vetrarfærð á heiðum vestanlands og sunnan

Það urðu snögg umskipti í veðri í nótt.  Snjóþekja og éljagangur er á Hellisheiði og Lyngdalsheiði en hálka á Mosfellsheiði og Sandskeiði. Víða um sunnanvert landið er talsvert um snjóþekju, hálkubletti og él.


Um landið vestanvert er víða hálka hálkublettir og éljagangur. Hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiðinni.


Á Vestfjörðum hefur snjóað mikið í nótt á fjallvegum og er Kleifaheiði þungfær með skafrenningi. Hálka og skafrenningur er á Gemlufallsheiði og í Dýrafirði. Snjóþekja með stórhríð er á Mikladal, hálfdáni, Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum.


Á Norðurlandi er víða hálka í Húnavatnssýslunni og í Skagafirðinum. Snjóþekja og stórhríð er á Öxnadalsheiðinni. Þæfingsfærð er á Vatnsskarði. Snjóþekja og éljagangur er einnig í Langadal. Hálka er í Víkurskarði.


Vegir um Norðurland eystra og Austfirði eru að heita má auðir.

Suðausturströndin er einnig nánast auð en hvasst víða.