Stjórnvöld verja um 30 milljónum króna í fornleifarannsóknir. Með betri stuðningi væri hægt að skapa ótal fleiri áningastaði fyrir ferðamenn en eingöngu við náttúruperlur landsins.
Þetta kemur fram á vefsíðu vikublaðsins Bæjarins besta.
Þar kemur fram að margar merkilegar minjar sé að finna á Vestfjörðum sem gætu laðað að erlenda ferðamenn. Hins vegar þurfi að bæta aðgengi að þeim, halda minjunum við og bæta upplýsingagjöf svo hægt sé að fræða ferðafólk um sögu og mikilvægi staðanna. Hins vegar sé lítið gert fyrir vannýttar auðlindir Vestfjarða í dag.
Eyþór Eðvarðsson, formaður Fornminjafélags Súgandafjarðar segir margar merkilegar minjar á Vestfjörðum sem væru áhugaverðar fyrir ferðamenn að skoða. Hann tekur Keravík, Stöðina í Staðardal í Súgandafirði og Hringsdal sem dæmi og bendir á að þar væri hægt að byggja upp spennandi ferðamannastaði.