Vestfirðingar treysta á alþingi

Peningar til að fylgja eftir samgönguáætlun sjást ekki í fjárlagafrumvarpinu. Augu flestra hafa beinst til Vestfjarða, þar sem vegir eru almennt með því versta sem þekkist. Friðbjörg Matthíasdóttir, forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar, var meðal viðmælenda í Laugardagsþætti Þjóðbrautar í gærmorgun.

Hún sagði þetta mikil vonbrigði, en hún sagði Vestfirðinga treysta að peningar til vegabóta verði í fjárlögum þega Alþingi hefur farið höndum um fjárlagafrumvarpið.

Friðbjörg er sannfærð um að vinna hefjist við Dýrafjarðargöng á næsta ári. Rétt einsog gert hefur verið ráð fyrir.

Umferð um vegi á Vestfjörðum hefur aukist hlutfallslega meira en um vegi annarrstaðar á landinu. Friðbjörg nefndi stóraukið atvinnulíf og aukna komu ferðamanna.

-sme