Vesalings elskendur frumsýnd í kvöld

Vesalings elskendur er ný íslensk/sænsk kvikmynd eftir hinn sænska Maximilian Hult og verður frumsýnd hérlendis í kvöld.

Vesalings elskendur segir frá bræðrunum Óskari og Magga, sem eru báðir rólegir í tíðinni en eiga erfitt með náin sambönd. Þeir fást við þetta vandamál hvor á sinn hátt þar sem Óskar reynir að forðast tilfinningaleg tengsl en Maggi fer í hvert sambandið á fætur öðru.

Maximilian Hult leikstýrir og skrifar handritið að Vesalings elskendum. Anna G. Magnúsdóttir og Anders Granström framleiða fyrir sænska framleiðslufyrirtækið LittleBig Productions og Guðrún Edda Þórhannesdóttir meðframleiðir fyrir Hughrif. Stefanía Thors klippir myndina, Tómas Örn Tómasson sér um stjórn kvikmyndatöku og Sunna Gunnlaugsdóttir samdi tónlistina. Í aðalhlutverkum eru Björn Thors, Jóel Sæmundsson og Sara Dögg Ásgeirsdóttir.

Þrátt fyrir sænska aðkomu er myndin öll tekin upp hér á landi. Þetta er önnur mynd Maximilian Hult í fullri lengd en sú fyrri, hin sænsk/íslenska Hemma, var einnig tekin upp hér á landi að stærstum hluta og meðframleidd af Guðrúnu Eddu og Friðriki Þór Friðrikssyni fyrir Hughrif.

Vesalings elskendur er sýnd í Smárabíói og Háskólabíói.