Fjöldi seljenda fasteigna á síðustu vikum situr uppi með mikið tjón sakir þess að lánasamningar fást ekki þinglýstir og fyrir vikið fá þeir ekki í hendur þá fjármuni sem samið var um í kaupunum. Á meðan njóta kaupendur hagnaðins af eignunum.
Fasteignasalar eru sammála um að ástandið á húsnæðismarkaði sé orðið mjög alvarlegt og bitni enda harkalega á þeim sem síst skyldi; fólkinu úti á markaði sem ekgi enga aðild að kjaradeilu ríkisins og Bandalags háskólamanna, en innan raða þess eru lömenn sem vinna hjá Sýslumanni og annast þinglýsingar á lánasamningum. Erindin hrannast upp hjá hinu opinbera og telja þeeir sem til þekkja að það taki marga mánuði að vinda ofan af vandanum fari svo að verkfallið leysist á næstu dögum sem þó er ekkert endilega víst, enda enginn samningafundur boðaður á næstu dögum.
Staðan er því þessi; kaupsamningar gilda en lánasamningar eru strand í kerfinu - og því fá seljendur ekkert fyrir sinn snúð á meðan kaupendur geta hirt arðinn af eigninni sem þeir hafa keypt og greitt fyrir með láni sem er lokað inni.