Fari svo að félagsmenn í VR, Landssambandi verslunarmanna og Flóabandalaginu ákveði að boða til verkfalls í atkæðagreislu sem fram fer í félögunum í dag stefnir í verstu kjaradeilu á Íslandi í fjóra áratugi. Þriðjungur vinnandi fólks landinu er á leiðinni eða kominn í verkfall.
Sagnfræðingar sem hafa skoðað fordæmi á vinnumarkaði segja að fara þurfi aftur fyrir verkfallið 1977, áður en Sólstöðusamningarnir voru gerðir, til að finna einhvern samjöfnuð við kjaradeilur á borð við þær sem nú skekja stoðir samfélagsins. Tíu þúsund félagsmenn Starfsgreinasambandsins hafa staðið í skæruverkföllum á síðustu vikum og stefna í ótímabundið verkfall síðar í maí. Félagar í Bandalagi háskólastarfsmanna eru þegar komnir í ótímabundið verkfall sem staðið hefur yfir í röskan mánuð - og þegar við bætast 2000 hjúkrunarfræðingar sem samþykktu verkfallsboðun í gær við þær starfstéttir sem þegar eru í verkfalli í heilbrigðisgeiranum þá er ekki einasta ljóst að uppi verður lífshættuleg staða á spítölum landsmanna heldur má búast við óafturkræfu tjóni úti á almennum vinnumarkaði þar sem fyrirtæki í frumgreinum matvælavinnslu og ferðaþjónustu geta hæglega farið í þrot á tiltölulega skömmum tíma.
Engin hreyfing er við samningaborðið hvort heldur viðsemjendur stéttarfélaganna eru ríkið eða atvinnurekendur á almennum markaði. Beðið er eftir útspili ríkisins sem hugsanlega verður lagt fram um eða upp úr næstu helgi, en þá er talið líklegt að önnur vika líði þar til nokkur von er á að samningavinna klárist. Þá er einmitt komið að fyrrgeindri ögurstundu að stór hluti þjóðarinnar leggi niður vinnu, en talið er líklegt að af því verði í að minnsta kosti nokkra daga til að fylgja enn frekar eftir kröfum stéttarfélaganna.