Versta veðrið er að skella á

Veðurstofan telur að versti hvellurinn austanlands muni verða á næstu þremur klukkustundum. Eftir klukkan 10 megi áætla að það versta verði yfirstaðið.

Vindur hefur mælst í fárviðrisstyrk og margvíslegt tjón orðið. Þök hafa fokið af húsum og ekki bætir úr skák að há sjávarstaða er nú og ausandi rigning eystra.

Veðrið mun færast vestur yfir landið en talið er að það verði verst fyrir austan.

Ekki er vitað um slys á fólki en fjöldi björgunarfólks er að störfum og fleiri í viðbragðsstöðu. Lögreglan hefur varað íbúa á Eskifirði sérstaklega við óveðrinu og er mælst til að enginn sé á ferli úti þar eystra.

Á myndinni að ofan er vindastaðan kortlögð samkvæmt Veðurstofunni.