Versta sumar í reykjavík frá upphafi

Sumarið í Reykjavík í ár er hið versta frá upphafi mælinga, aldrei hafa mælst færri sólskinsstundir eða meiri úrkoma á þeim fjórtán vikum sem liðnar eru af sumri. Þetta segir Trausti Jónsson, veðurfræðingur og áhugamaður um veður, á bloggsíðu sinni.

Trausti bendir þó á að tölurnar um sólskinið séu ómarktækt minna en á sama tímabili á árunum 1913,  1914 og 1984. Úrkoman er þó sú mesta frá upphafi, rúmlega 300 mm á síðustu vikum, næstu tölur eru um 250 mm, árin 2014 og 1887.

Hitastigið í Reykjavík hefur aftur á móti verið verra. Trausti segir veðrið hafa verið heldur svalt, 7,7 stiga meðalhita fyrstu 14 vikur sumars. Ómarktækt kaldara hafi verið í Reykjavík á sama tímabili árið 2015, eða 7,6 stig, en síðan þurfi að fara aftur til 1993 til að finna jafnlágan meðalhita fyrstu 14 sumarvikurnar. Trausti segir þó að í eldri tíð sé slæðingur af lægri tölum en í ár.

Nánar á

 

http://www.dv.is/frettir/2018/07/26/versta-sumar-reykjavik-fra-upphafi-god-tidindi-vaendum/