Samtök verslunar og þjónustu hafa látið gera samanburð á stærð verslunarhúsnæðis á Íslandi og í Noregi sem leiðir í ljós að búðarfermetrar á hverja 1000 íbúa eru færri hér á landi en hjá frændþjóðinni. Þar kom einnig í ljós að meðalstærð verslunar á Íslandi er minni en í Noregi. Þetta mun vera þvert á það sem ætlað var, en íslensk verslun hefur einmitt verið gagnrýnd fyrir að verja of miklu rými í verslanir sínar sem svo aftur bitni á vöruverðu, neytendum í óhag.
Þetta kom fram í viðskiptaþættinum Hringtorgi í gærkvöld þar sem gestir Huldu Bjarnadóttur voru meðal annarra Andrés Magnússon framkvæmdastjóri SVÞ og Margrét Sanders formaður samtakanna. Bæði telja þau að það vanti vandaðri rannsóknir og gögn um stöðu íslenskrar verslunar í samanburði við helstu nágrannalöndin. Margar skýrslur til þessa hafi verið með rangfærslum, þar á meðal McKinsey-skýrslan sem hafi t.d. túlkað allt Höfðatorg sem verslunarhúsnæði.
Andrés sagði í þættinum að sér hafi þótt umræðan um alltof rúmgott verslunarhúsnæði á Íslandi á sínum tíma mjög óþægileg fyrir samtökin þar sem þau hefðu engin haldbær gögn haft til að sýna fram á að raunveruleikinn væri annar en sá sem haldið var fram. Nú sé sannleikurinn hins vegar kominn fram og rangfærslur fyrri skýrslna leiðréttar og þá sé hægt að taka umræðuna í réttu ljósi.
Viðskiptaþátturinn Hringtorg er frumsýndur á Hringbraut öll mánudagskvöld klukkan 21.30.