Verri heilsa íbúa úti á landi

Ýmsar vís­bend­ing­ar eru um að heilsa fólks sé lak­ari á lands­byggðinni en á höfuðborg­ar­svæðinu.

Svo segir í nýrri doktorsritgerð Sigríðar Haraldsdóttur í lýðheilsuvísindinum sem Sigríður varði ritgerð sína við HÍ í gær.

Morgunblaðið segir frá og vitnar til þess að í rannsókninni komi fram að vís­bend­ing­ar séu um  van­grein­ing­ar á sjúk­dóm­um á meðgöngu utan höfuðborg­ar­svæðis­ins. Þá er dán­artíðni lít­ils­hátt­ar hærri vegna hjarta- og æðasjúk­dóma meðal kvenna utan höfuðborg­ar­svæðis­ins en inn­an þess.

Doktorsverkefnið nefnist: Heilsa í heima­byggð – Heilsu­far og notk­un heil­brigðisþjón­ustu eft­ir bú­setu­svæðum á Íslandi.  Ein leið til að vinna gegn svæðis­bundn­um mun á heilsu er styrking heilsu­gæslu og betra aðgengi að sér­fræðiþjón­ustu utan höfuðborg­ar­svæðis­ins.