Tæplega þrír af hverjum fjórum Íslendingum (72%) meta andlega heilsu sína góða eða mjög góða árið 2017 og hefur hlutfallið lækkað jafnt og þétt frá því
vöktun hófst árið 2014, en þá var það 79%. Lítil breyting er þó frá því fyrir ári, samkvæmt könnun Landlæknisembættisins á líðan þjóðarinnar.
Úrtakið var 8.257 einstaklingar af öllu landinu, 18 ára og eldri, sem valdir voru af handahófi úr viðhorfahópi Gallup og úr þjóðskrá. Þátttökuhlutfall var 54,5%.
Árið 2016 mátu fleiri konur (75%) en karlar (70%) andlega heilsu sína góða eða mjög góða en enginn munur er á milli kynja árið 2017.Sem fyrr meta fleiri í eldri aldurshópum andlega heilsu sína góða eða mjög góða heldur en í þeim yngri. Í aldurshópnum 65 ára og eldri meta 80% andlega heilsu sína góða eða mjög góða en 61% meðal þeirra sem eru 18-24 ára. Helstu breytingar sem greina á milli ára er að hlutfall kvenna í yngsta aldurshópnum sem metur andlega heilsu sína góða eða mjög góða lækkar um 11 prósentustig, eða úr 69% árið 2016 í 58% árið 2017. Einnig lækkar þetta hlutfall meðal kvenna í aldurshópnum 25-34 ára úr 74% í 65%.