Sá hildarleikur sem nú er háður í sölum Alþingis er pistlahöfundum á hringbraut.is hugleikinn þessa dagana. Auk Þorsteins Pálssonar gerir Guðmundur S. Brynjólfsson málþóf og skítkast það sem tíðkast á Alþingi að efni sínu í nýjum pistli - auk hinnar óvægnu umræðu sem fer fram utan Alþingis.
Guðmundur segir:
„Sorglegra er þó – að mínu mati – að fylgjast með áhangendum, utan þings, sem eru svo niðurnjörvaðir við pólitíska flokka og svo ofurseldir flokkshollustu eða öllu heldur flokkspest, kaunum slegnir þjónkun við listabókstafi en ekki orð og þá alls ekki gjörðir, að þeir verja einn umfram annan af þingmönnum í þessum ógeðslega dritsirkus sem Alþingishúsið hýsir. Þjappa sér í raðir og flokka til að styðja og réttlæta ósómann.
Heitingar og brigsl, upprifjanir á misgjörðum og syndum – allt á ská eða víxl, aftur á bak og áfram.
Er nema von að hér sé allt í sukki."