Verkvit ekki til á lager

Lóa og lífið verður sýndur annað kvöld, laugardag, kl. 20 á Hringbraut en Lóa fær til sín þá Guðna Má og Óla Jóhann, presta. Lóa spyr þá um samstarf sitt innan kirkjunnar, ásamt því að spurja hvað leiddi þá út í guðfræðina. Þá segir Guðni að leiðin hafa lengst af legið í guðfræðina en ekki voru allir sáttir með það í fjölskyldunni og mældu með því að hann myndi læra einhverja iðnfræði. Slíkt verkvit var hins vegar ekki til á lager þegar hann kom undir og því guðfærðin augljóslega rétta iðja Guðna. Ekki missa af stórskemmtilegum þætti á Hringbraut, annaðkvöld kl. 20.