Helgi Þórhallsson, forstjóri United Silicon, sagði á opnum fundi Umhverfis-og samgöngunefndar Alþingis í morgun að kísilmálmverksmiðjan í Helguvík væri mannanna verk og „ekki fullkomin frá degi eitt“.
Fjölmennur fundur var í morgun málefni verksmiðju United Silicon í Helguvík í Alþingishúsinu.
Helgi sagði þar að ekki væru margar verksmiðjur líkt og sú sem er suður með sjó í okkar heimsluta og sú sem tekin var í notkun í nóvember síðastliðnum sé fyrsta sinnar tegundar í Evrópu um langt skeið. „Það má segja að þeir sem eru að framleiða þennan búnað séu ekki að gera þetta dags daglega“, sagði Helgi en bætti við að hönnunin væri samt þekkt og erfiðleikar vegna mengunar séu ekki komnir til af reynsluleysi.
Byrjunarvandamál herji nú á en þau séu leysanleg. „Það tekur eitt til tvö á að koma svona verksmiðju á ról sem menn vilja hafa. En þetta hefur valdið mér gígurlegum vonbrigðum, það er ekki eitt heldur allt“, sagði Helgi um þá erfiðleika varðandi mengun frá stóriðjunni. „Ég hef ekki lent í þessu áður“, sagði Helgi inntur eftir skýringum á vandamálum verksmiðjunnar. Þá sé tölvubúnaður mun flóknari en í verksmiðjum sem nú þegar eru starfandi og því gangi erfiðlega að fá allan tölvubúnaðinn til að virka saman.
Fram kom á fundinum í máli Sigrúnar Ágústsdóttur, sérfræðings frá Umhverfisstofnun að í undibúning væri að gera nánari úttekt á hönnun og rekstri verksmiðjunnar.
Fjallað verður nánar um málið á Þjóðbraut á morgun, fimmtudaginn 6.apríl kl.21.