Undirrituð hefur verið viljayfirlýsing um stofnun þróunarsjóðs fyrir fagháskólanám. Með því á að efla verk og starfsnám. Tillögum verkefnishóps um fagháskólanám hefur verið skilað til mennta- og menningarmálaráðherra. Til dæmis er lagt til að háskólanámið verði hafið sem þróunarverkefni á næsta ári, með fimm námsleiðir til að byrja með.
Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra, Hannes G. Sigurðsson framkvæmdastjóri SA, Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ og Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB undirrituðu viljayfirlýsinguna. Sjóðnum er ætlað að fyrir þróun á námsleiðum og kynningu á þeim.
SA, ASÍ og BSRB lýsa yfir vilja til að starfsmenntasjóðir á forræði þeirra setji í sjóðinn 50 milljónir króna við stofnun hans 1. janúar 2017. Ríkið mun leggja 100 milljón krónur í sjóðinn miðað við yfirlýsinguna. .