Verklaus og uppgefin ríkisstjórn!

Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi formaður hreyfingarinnar undrast verkleysi ríkisstjórnarinnar og segir hana beinlínis hafa gefist upp á miðju kjörtímabili í veigamiklum málaflokkum.

Þetta kemur fram í grein hans í leiðaraopnu Fréttablaðsins í dag þar sem hann heldur því raunar til haga að það geti verið margt verra en að menn komi litlu í verk, einkum ef þeim séu mislagðar hendur og bendir á orðahagan frænda sinn sem sagði að það væri vont ef hroðvirknir menn kæmu miklu í verk.

En Steingrími er ekki alveg sama - og bendir á athyglisverðan lista yfir þau mál sem ríkisstjórnin eða einstaka ráðherrar hennar hafa einfaldlega gefist upp á, jafnvel um eða fyrir mitt kjörtímabil. Hann nefnir örfá dæmi:

\"Sjávarútvegsráðherra gafst upp við breytingar á kvótakerfinu.

IÐnaðarráðherra gafst upp með náttúrupassann (sem betur fer vissulega), en upplausn ríkir í staðinn.

Utanríkisráðherra gafst upp með formlega afturköllun ESB-umsóknar.

Innanríkisráðhera virðist hafa gefist upp með samgönguáætlun (engin áætlun allt kjörtímabilið).

Félags- og húsnæðisráðherra virðist vera að gefast upp með húsnæðisfrumvörpin og Framsókn með afnám verðtryggingar (loforðið mikla). Fjármálaráðherra kennt um.\"

Og ráðherrann fyrrverandi spyr í lok greinarinnar: \"Verkin tala, eða hvað?\"