Samningar náðust í kjaradeilu sjúkraliða, SFR og lögreglumanna við ríkið um klukkan fimm í nótt. Samningurinn felur í sér allt að 30 prósenta launahækkun á næstu fjórum árum að því er greint hefur verið frá í fjölmiðlum í morgun.
„Við lögðum í þessa vegferð með ákveðið markmið. Við gerðum þá kröfu að við fengjum sömu kjarabætur og gerðardómur dæmdi háskólamenntuðu fólki hjá ríkinu og sem ríkið hafði verið að semja við aðra aðila. Þetta er samningur upp á 29 til 30 prósent,“ segir Árni Stefán Jónsson, formaður SFR á visir.is og hyggur að samningarnir verði samþykktir í atkvæðagreiðslu félagsmanna.
Samningurinn er afturvirkur og gildir frá 1. maí síðastliðnum til marsmánaðar 2019. Verkfallsaðgerðum hefur verið frestað.