Svo gæti farið að verðbólga í maí verði mun minni en spár höfðu gert ráð fyrir en þar var reiknað með töluverðri hækkun íbúðarverðs. Verkfall BHM hefur hins vegar gert það að verkum að sárafáum kaupsamningum vegna húsnæðis hefur verið þinglýst á síðustu fimm vikum.
Fasteignaverð á landinu, einkum í vissum hverfum Reykjavíkur hefur hækkað að nokkrum mun frá því skuldaleiðrétting stjórnvalda kom til framkvæmda en það hefur haft sín áhrif á verðlagsvísitölu sem raunar hefur einnig valdið hækkun húsnæðisskulda. Í raun hefur það verið svo að hækkun húsnæðisverðs hefur ein og sér haldið uppi verðbólgunni, því ef hún er tekin út úr vísitölunni hefur verið um raunverulega verðhjöðnun að ræða í hagkerfinu á undanliðnum mánuðum.
Finnbogi Gunnarsson, sérfræðingur á vísitöludeild Hagstofu Íslands segir í samtali við Morgunblaðið í dag að ástandið núna sé harla óvenjulegt: "Það að sárafáum kaupsamningum um íbúðarhúsnæði frá apríl hefur verið þinglýst skapar óvenjulegar aðstæður fyrir okkur. Aðferðafræðin sem við notum við útreikning á húsnæðislið vísitölu neysluverðs byggist á þriggja mánaða meðalverði þinglýstra kaupsamninga um íbúðarhúsnæði." Það þýðir að hans sögn að þessir fáu samningar sem til eru fyrir apríl munu vega mjög lítið í nýrri mælingu sem metur verðbólguna. Og sem fyrr segir er það einungis húsnæðisliðurinn sem nú heldur henni uppi.