Verkföll valda strax tjóni

„Ég held að það sé mikilvægt að menn átti sig á því hvað er verið að tala um þegar verið er að tala um að verkföll verði að bíta. Þegar talað er um að verkfall sé strax farið að bíta þá þýðir það á mannamáli að það er strax farið að valda tjóni. Það veldur fjárhagslegu tjóni, það veldur tjóni á orðspori, bæði Íslands og þeirra fyrirtækja sem eru að selja þjónustu í ferðaþjónustunni, og það veldur samfélaginu tjóni vegna þess að virðiskeðja ferðaþjónustunnar er gríðarlega víð. Ferðaþjónustan er heild og það er ekki hægt að taka einn hlekk úr keðjunni án þess að það hafi áhrif á alla keðjuna,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.

Jóhannes Þór og Kristófer Oliversson, formaður Fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu og forstjóri Center Hotels, voru gestir Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í gærkvöld, þar sem þeir ræddu fyrirhuguð verkföll starfsfólks í ræstingum á hótelum og veitingahúsum og áhrif þeirra á ferðaþjónustuna.

Jóhannes Þór telur verkföll alltaf slæm. „Samfélagið nýtur gríðarlegra tekna af ferðaþjónustunni, bæði sem gjaldeyristekna og beinna skatttekna, sem þýðir að það hverfur þá einnig. Svona árásir á ferðaþjónustuna eru eitt augljósasta dæmið um hvernig verkföll valda samfélaginu strax beinu tjóni.“

„Þessi aðferð er núna að fá fólkið til landsins og koma því í vandræði ef það verður ekki hægt að halda hótelum opnum. Þá eiga að vera hér hundruð eða þúsundir sem að komast ekki í gistingu ef hótelin eru lokuð. Það er ekki mjög geðsleg aðferð gagnvart gestunum okkar,“ segir Kristófer.

Hann segir áhrifanna fyrst gæta hjá verðmætustu gestunum. „Ráðstefnugestir og aðrir slíkir eru mjög viðkvæmir. Við fórum í gegnum þetta í eldgosinu [í Eyjafjallajökli árið 2010], þegar það byrjaði að gjósa í apríl og það afbókaðist allt sumarið og fram á haust, allir verðmætustu gestirnir bara á einu bretti. Niðurstaðan var verulegt tekjutap,“ segir Kristófer og bendir á að ef óvissa kemur upp eru mikilsverðar ráðstefnur færðar annað. Þá þurfi að endurselja herbergi sem voru ætluð ráðstefnugestum á lækkuðu verði með tilheyrandi tekjutapi.

Kristófer bendir einnig á að þegar verkalýðsfélögin segi að hótel á Íslandi græði á tá og fingri sé það ekki rétt. KPMG hafi gert úttekt á hótelrekstri á landinu þar sem hafi t.a.m. komið fram að hótelrekstur í Reykjavík sé sambærilegur rekstri í hverju öðru fyrirtæki, hótelin í Reykjavík séu ekki að græða meira en önnur venjuleg fyrirtæki í rekstri.

Nánar var rætt við Jóhannes Þór og Kristófer í 21 í gærkvöld. Viðtalið í heild sinni er að finna hér: