Við munum halda þessum aðgerðum áfram eins lengi og þörf er á, sagði Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður Bandalags háskólamanna í samtali við Pál Magnússon á Þjóðbraut í gær.
Þórunn sagði jafnframt að það kynni vel að vera að ríkisvaldið hefði ákveðið að semja ekki við BHM fyrr en samningar hefðu tekist á almennum vinnumarkaði. Ríkið yrði þá bara að taka afleiðingunum af slíkri ákvörðun.
Þunglega horfir við samningaborð bandalagsins og samninganefndar ríkisins og virðast litlar líkur á lausn deilunnar á næstu dögum.
46. dagur verkfallsins er í dag.
Hægt er að skoða viðtalið í heild sinni inni á heringbraut.is og einnig klippur úr viðtalinu.