Verkföll bhm hefjast í fyrramálið

Fé­lags­dóm­ur hafnaði kröfu rík­is­ins um að ólöglega hafi verið boðað til verkfalla fimm stétt­ar­fé­laga inn­an vé­banda BHM og því er því ljóst að hundruð félagsmanna hefja verk­fall í fyrra­málið. Niðurstaða fé­lags­dóms var kynnt fyr­ir skemmstu í Héraðsdómi Reykja­vík­ur.


Fjöldi félaga innan BHM hefur boðað verkföll ýmist ótímabundið eða tímabundið og skella þau fyrstu á á morgun. Samkvæmt upplýsingum á ruv.is  fara 108 geislafræðingar í ótímabundið verkfall og gætir áhrifa þess á langflestum sjúkrahúsum landsins. Þá fara 215 lífeindafræðingar fara í ótímabundið verkfall á milli klukkan 8 og 12 á morgun og það hefur áhrif á starf í öllum sjúkrahúsum landsins. Nú er einnig ljóst að 135 ljósmæður á Landspítala hefja ótímabundin verkföll á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum frá og með morgundeginum. 


Verkfall lögfræðinga hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu hefjast einnig á morgun.  Þá stöðvast allar þinglýsingar.  Alls gætu liðlega þrjú þúsund manns lagt niður vinnu á næstu dögum, en næsti samningafundur í deilunni er ekki boðaður fyrr en á miðvikudag.